Fabulousiti…

…I’m a mother fabulous person.

Húsmóðirin í holtinu…

…það er ég. Frumburðurinn sefur á sínu græna úti í vagni og húsbóndinn liggur lasinn í sófanum og vorkennir sér á milli snýtinga. Til að sýna honum hversu mikið ég vorkenni honum er kaka handa honum í ofninum. Það er ekki óhrein flík í kotinu og ekki rykkorn að finna. Djöfull er ég myndarleg og þetta geri ég allt á háum hælum, með uppsett hár og fínu neglurnar mínar. Já, ég er best.

Valkvíði…

…er að hrjá mig. Er enn að ákveða hvort að ég nenni að vera með blogg. Toggi nennir ekki, finnst hann víst hafa eitthvað betra við tíma sinn að gera. Ef ég nenni að hafa blogg hvernig vil ég þá hafa það? Hvaða lúkk vil ég hafa? Um hvað vil ég skrifa? Um hvað vil ég ekki skrifa? Verð ég ekki að fá mér nýja slóð ef enginn er Togginn? Eitt sem ég veit þó er að ég bölva því að hafa dregið fram uppskriftina að skinkuhornunum mínum. Þau eru svo syndsamlega góð og það fer ekki vel með skortinum á sjálfsstjórn hjá mér þessa dagana.

Pæli betur í þessu seinna.

Síðastliðinn mánudag…

…varð frumburðurinn 4ra mánaða. Í tilefni dagsins fékk hann sprautu og skoðun og hlaut að sjálfsögðu toppeinkunn, enda með eindæmum glæsilegt og vel heppnað eintak.

Frumburðurinn 4ra mánaða

Stína

Það er örugglega…

…rosalega næs að vera pakkað ofan í vagn með sængina sína og sofa svo í ferska loftinu eftir að vindurinn hefur ruggað manni í svefn. Ég myndi allavega ekki kvarta.

Limited edition Simoinn

Limited edition turbo Simoinn

Stína

Sjónvarpssjúklingur?

Hversu augljóst er það að ég er í fæðingarorlofi þegar ég tek eftir svona klúðri hjá Skjá Einum:

Kimora: Life in the Fab Lane verður Kimora: Life in Fab Line, vinkona mín hún Rachael Ray verður Racheal Ray og  Age of Love verður Age og Love.

Mjög augljóst geri ég ráð fyrir en mér til málsbóta þá tekur brjóstagjöf tíma sinn og ég má alveg hafa kveikt á tv á meðan.

Stína

3ja mánaða

Stína

Erfitt líf

Það tekur greinilega ekkert lítið á að leika sér:

Stína

Beðmál í borginni

Ég skellti mér í bíó á Sex and the city um daginn. Væntingarnar voru í sjálfu sér ekki miklar enda kannski ekki raunhæft að gera miklar kröfur. Þættirnir finnst mér fínir og myndin var það líka, fín afþreying. Ekkert meistaraverk og ekkert sem kom á óvart. Í raun þarf ekki annað en að sjá trailerinn til að geta vitað nokkuð nákvæmlega hvað mun gerast. Það var þó ýmislegt annað sem gerði bíóferðina eftirminnilega. Meðal annars stelpan fyrir framan okkur sem grenjaði í dramakasti og með látum. Hvað er málið með það? Ég sá ekki ástæðu til að tárast á neinum á tímapunkti. Kannski er það vegna þess hvað Carrie er farin að fara óstjórnlega mikið í taugarnar á mér. Eftir því sem leið á þættina var hún farin að nudda mig í vitlausa átt oftar og oftar og í myndinni bara hætti það ekki. Það er eitthvað við hana sem ég þoli ekki… sennilega… hún. Já og fötin. Það er undantekning ef hún er smekklega klædd, annars er hún alltaf eins og fáviti til fara. Seint mun ég skilja þær sem vilja apa eftir stílnum hennar. Á meðfylgjandi mynd má raunar sjá eina af þessum undantekningum. Ég væri til í dressið og töskuna.

Stína

Markmiðinu er náð!

Þá erum við loks komin í hóp flotta og fína fólksins og búin að stofna parasíðu. Það er vonandi að okkar verði eins smart og skemmtilegt aflestrar og síða parsins sem veitti okkur innblástur, Gumma og Immu. Við miðum á stjörnurnar: Einn, tveir og flugtak!

Stína